Afmælisdagur Kristjáns

Kristján á afmæli í dag og samkvæmt öllum reglum heimilisins fékk hann kaffi í rúmið, ásamt afmælissöng og pakka. Baldur harðneitaði að byrja á laginu Nú hátíð halda skal og heimtaði að það yrði byrjað á þessu venjulega. Það kom ekki að sök, það er betra að hafa unga manninn sáttan í byrjun dags.

Risaeðlupönnukökur

Baldur og Una hjálpuðu mér að steikja pönnukökur handa afmælisbarninu í morgunmat og svo bjuggum við öll saman til tvo stóra snjókarla úti í garð og kveiktum bál.

Næstu fimm daga munar fimm árum á okkur hjónum.

Afmælisbarnið á Hornströndum síðastliðið sumar

Færðu inn athugasemd