Aldrei þessu vant er hluti fjölskyldunnar væntanlegur til landsins. Baldur sendi mér skilaboð og sagðist koma á morgun, miðvikudag. Hann ætlar að vera til sunnudags og sinna afa, en Baldur hefur ekki komið til landsins í fjögur og hálft ár. Ekki síðan afi hélt upp á níræðisafmælið sitt um árið og Baldur Atli fæddist.
Og svo kemur mamma á fimmtudaginn. Hún ætlar að vera í tvær vikur, gistir á Strikinu og sinnir þá væntanlega afa líka.
Þau vita ekki hvort af öðru, að minnsta kosti ekki svo ég viti til, en það verður gaman ef við getum öll sést, þó ekki væri nema í stutta stund.