Áslaug keppti í Gettu betur í sjónvarpinu í dag. Veit ekki hvor okkar var stressaðri, ég eða hún. Keppnin sjálf var ekki eina ástæðan fyrir stressinu heldur hefðum við Kristján aðra ástæðu fyrir smá sviðsskrekk.
Við höfðum nefnilega boðið foreldrum Magga í kvöldmat, fyrsta skiptið sem við hittum þau. Við buðum upp á nætursaltaða ýsu og allt gekk þetta vel.
Eftir matinn horfðum við öll saman á keppnina. Ég þurfti að standa upp þó nokkrum sinnum og foreldrar Magga voru líka dauð stressuð en sem betur fer unnu MR-ingar.
Bæði Áslaug og Maggi tóku sig vel út á skjánum. Eða hnakkinn á Magga þ.e.a.s því það sást ekki meira í hann en akkúrat hnakkann.