Minningar á Facebook I

Febrúar hefur greinilega verið skemmtilegur mánuður hjá mér, að minnsta kosti poppa upp minningar hjá mér á Facebook sem eru skemmtilegar og vekja hjá mér hlýlegar minningar.

Ein minningin snýr að stórum jarðskjálfta fyrir þremur árum. Skjálftinn var 5,2 á Richter og var meðal stærstu skjálfta sem voru undanfarar eldgossins í Geldingadölum. Við vöknuðum öll við skjálftann og börnin fjögur skriðu upp í til okkar. Ég tók yndislega mynd af okkur af því tilefni.

Færðu inn athugasemd