Einn morgun í mars vaknaði ég eldsnemma eins og venjulega. Kl. 5.30 hringdi klukkan og ég gerði mig klára til að fara í Afrek. Ég kíkti í símann minn á meðan ég hinkraði eftir kaffinu og sá að eitthvað hafði gengið á fyrr um nóttina, að minnsta kosti ef marka mátti hvað var í gangi á Facebook.
Í hverfisgrúppunni „Hlíðar-besta hverfið“ var mynd af Snúði okkar í fanginu á ókunnugu fólki. Með fylgdu skilaboð um að þau sem póstuðu í grúppuna hefðu verið á foreldrarölti og Snúður hefði slegist í för. Það var rigningarkvöld og eftir röltið var kötturinn orðinn ansi blautur. Hann vildi ekki fara heim svo brugðið var á það ráð að hringja í Dýrahjálp Reykjavíkur sem mætti á núll einni vopnuð skanna. Örmerkið á mínum manni fannst ekki svo greyið Snúður, bústinn heimilisköttur sem er augljóslega vel haldinn (en þó ólarlaus því hann neitar að vera með ól) var tekinn höndum.
Morguninn eftir reyndi ég að hafa upp á heimiliskettinum. Byrjaði á því að hringja í númer Dýrahjálpar Reykjavíkur. „Veljið einn fyrir dýrahræ og meindýr“, „veljið tvo fyrir hundahald“, „veljið þrá fyrir annað“. Ég valdi þrjá og lenti eftir þónokkra bið hjá þjónustuveri Reykjavíkurborgar. Ekki gátu þau hjálpað mér að finna köttinn og bentu mér á að velja annað hvort einn (dýrahræ og meindýr) eða tvo (hundahald) þótt ég hafi útskýrt að Snúður uppfyllti hvorugt skilyrðið því hann væri köttur.
Ég náði sambandi við mann með því að velja einn. Hann kannaðist ekki við neinn kött en sagðist mundu heyra í kollega sínum hvort eitthvað hefði gerst á kvöldvaktinni. Hringdi svo í mig aftur með góðar fréttir því Snúður hafði sannarlega fundist og var staddur í Húsdýragarðinu. Hann tjáði mér að ég mætti sækja köttinn.
Þennan morgunn gekk mikið óveður yfir Reykjavík. Það var slydda og göturnar voru einn pollur, og gangstéttarnar auðvitað líka. Ég komst við illan leik í Húsdýragarðinn og eftir örlitla bið var komið með Snúð í búri. Hann var vel á sig kominn, sem endranær, og maðurinn í Húsdýragarðinum var sammála því að mögulega hefði ekki þurft að handsama kött í svo góðum holdum vegna dýraverndunarsjónarmiða.
Það er allaveganna ljóst hvar bestu þjónustu Reykjavíkurborgar er að fá. Hjá Dýrahjálpinni. Snúður er annars alsæll og glaður með að vera kominn heim, unir sér vel heima nú sem fyrr.