Upphaflega stóð til að við Kristján færum til Japans í fyrra, en af því að ég var svo lengi að jafna mig eftir lærbrotið ákváðum við að fresta ferðinni um heilt ár. Yuriko, sem kennir við norrænudeild Tokai-háskóla rétt fyrir utan Tokyo, hafði fengið styrk til að bjóða mér að fjalla um íslenskar og norrænar bókmenntir við deildina, og ég ákvað að fullnýta ferðina og hitta japanska útgefendur, þýðendur og fleiri. Yuriko hafði líka skipulagt kynningu á íslenskum og finnskum bókmenntum í íslenska sendiráðinu í Tokyo, sem ég tók þátt í ásamt Tiiu vinkonu minni frá finnska bókmenntasjóðnum. Loks var haldin tveggja daga norræn bókmenntahátíð, Nordic Book Festa, sem vonandi heldur áfram að vaxa og dafna.

Fyrirlesturinn við háskólann var strax á öðrum degi ferðarinnar. Við hjónin vorum ansi þotuþreytt eftir langt ferðalag, en fyrirlesturinn gekk samt vel. Nemendurnir sýndu íslenskum bókmenntum og uppruna þeirra mikinn áhuga. Þau leggja stund á norræn fræði og fá því góða heildarmynd af bókmenntum og menningu Norðurlanda í náminu.

Yuriko sýndi okkur Jimbōchō-hverfið í Tokyo, þar sem bókabúðirnar standa hver við aðra, bæði búðir með nýjar bækur og notaðar. Við Tiia sáum að það er heilmikið pláss í hillunum fyrir fleiri norrænar bækur, svo nú er um að gera að bretta upp ermar. Við Íslendingar erum svo heppin að eiga þrjá þýðendur í Japan sem geta þýtt beint úr íslensku, og í því felast mörg tækifæri.

Í sendiráðinu sagði ég frá því hvað heimurinn er lítill þegar allt kemur til alls. Japanskur maður sem gisti heima hjá ömmu og afa í Holtó þegar ég var lítil reyndist hafa kennt við norrænudeild Tokai-háskóla, og hann gaf út kennslubók í íslensku. Á blaðsíðu sextán kemur nafnið Stella fyrir, þar sem hann útskýrir muninn á ell-hljóðum (fjall og Stella). Hann hefði getað valið önnur orð, en mig grunar að amma og afi hafi haft hönd í bagga með að koma Stellu-nafninu fyrir. Kynninguna sóttu meðal annars útgefendur, þýðendur og fræðimenn, og á eftir var boðið upp á fika að sænskum hætti.


Á bókahátíðinni hittum við marga gesti sem voru komnir til að kynna sér norrænar bækur og höfunda, og þeir voru sérlega spenntir að heyra íslensku. Ég las því Skrímsli í myrkrinu eftir Áslaugu Jónsdóttur og félaga, og á meðan var sýnd hreyfimynd sem var sett saman í fyrra minnir mig og sýnd á barnabókahátíð í Tama, sem er nú orðin vinaborg Reykjavíkur. Ég tók líka þátt í pallborði um íslenskar bókmenntir með Yuriko og Shohei, einum af bráðsnjöllu þýðendunum úr íslensku á japönsku.

Kristján fékk óvænt hlutverk. Þar sem hann er af norsku bergi brotinn var hann beðinn að taka þátt í þýðingarsmiðju þar sem upprennandi þýðendur spreyttu sig á barnabók. Fyrir valinu varð Hvis jeg var statsminister eftir Trygve Skaug, skemmtileg bók en líka svolítið snúin, því höfundurinn er einstaklega uppáfyndingasamur og býr meðal annars til sín eigin orð. Kristján leysti þetta vel, eins og við var að búast. Hann útskýrði muninn á viðtengingarhætti og framsöguhætti og sagði frá fyrirbærum eins og gangstéttum, en gangstéttirnar í Tokyo eru að minnsta kosti víðast hvar aðeins öðruvísi en við eigum að venjast á Norðurlöndum.

Ferðin varð líka mín eigin litla bókamessa. Heilan dag fundaði ég með barnabókaútgefendum á skrifstofu umboðsmanna okkar sem sinna japanska barnabókamarkaðnum með okkur. Fundirnir voru margir, teið var drukkið í lítravís og ég varð margs vísari. Annan dag hitti ég útgefendur fullorðinsbóka. Þann dag skipulögðu hinir umboðsmenn RLA í Japan af sömu natni, og við funduðum bæði á skrifstofu þeirra og hjá útgefendum í nágrenninu. Þessi ferð gaf mér einstakt tækifæri til að styrkja tenglsin við útgefendur í Japan, sem ég er mest í samskiptum við í gegnum tölvupóst, og læra betur inn á japanska bókamarkaðinn.

Nú þegar ég er á heimleið sitja eftir samtöl við lesendur og bókafólk í Japan. Við einblíndum á það sem sameinar Japani og Íslendinga, og það reynist vera ansi margt þegar vel er að gáð.